18
2.6 Skráning tekna (framhald)
2.7 Fjármunatekjur og fjármagnskostnaður
2.8 Erlendir gjaldmiðlar
2021 2020 31.12.2021 31.12.2020
0,0079 0,0074 0,0077 0,0079
1,1821 1,1423 1,1321 1,2271
1,3751 1,2833 1,3478 1,3643
0,7973 0,7463 0,7855 0,7854
0,1589 0,1533 0,1522 0,1649
0,1163 0,1066 0,1133 0,1173
0,1166 0,1091 0,1104 0,1224
1,0938 1,0670 1,0955 1,1350
0,0091 0,0094 0,0087 0,0097
Japanskt jen (JPY) .........................................................................
Íslensk króna (ÍSK) ........................................................................
Evra (EUR) ....................................................................................
Sterlingspund (GBP) ......................................................................
Kanadadalur (CAD) ........................................................................
Dönsk króna (DKK) ........................................................................
Norsk króna (NOK) ........................................................................
Sænsk króna (SEK) .......................................................................
Svissneskur franki (CHF) ...............................................................
Tekjur af sölu eru færðar þegar yfirráð yfir vörunum hefur verið flutt til kaupenda, sem er þegar vörurnar hafa verið afhentar. Afhending
fer fram þegar kaupandi hefur tekið við vörunum samkvæmt flutningsskilmálum, áhættan á úreldingu og tapi hefur verið flutt til hans
og annaðhvort hefur kaupandi samþykkt vörurnar í samræmi við sölusamninginn, staðfestingarákvæði hafa liðið eða samstæðan hefur
hlutlægar vísbendingar um að öll skilyrði fyrir viðurkenningu hafi verið fullnægt. Reikningar eru að jafnaði gefnir út mánaðalega og eru
á gjalddaga við útgáfu.
Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning með aðferð virkra vaxta vegna allra fjármálagerninga sem færðir eru á kostnaðarverði.
Arðstekjur eru færðar þegar réttur til greiðslu er fastsettur. Gangvirðisbreytingar fjárfestinga og afleiða á gangvirði eru færðar í
rekstrarreikning meðal fjármunatekna. Gangvirðisbreytingar af áhættuvarnargerningum eru færðar yfir aðra heildarafkomu.
Allur fjármagnskostnaður er færður í rekstrarreikning á því tímabili sem hann fellur til, að undanskildum fjármagnskostnaði vegna
fjárfestinga í smíðum. Fjármagnskostnaður sem fellur til vegna þeirra er tilgreindur sem hluti af bókfærðu verði eignarinnar.
(c) Eignfærður lántökukostnaður
Almennur og sérstakur lántökukostnaður sem er beintengdur kaupum eða byggingu eigna sem uppfylla skilyrði er eignfærður á þeim
tíma sem það tekur að klára og koma eign í rekstrarhæft ástand. Til þessara eigna teljast eignir sem tekur nokkurn tíma að koma í
rekstrarhæft ástand, eins og t.d. nýsmíði skipa.
Starfrækslugjaldmiðill samstæðunnar er bandarískir dollarar (USD). Viðskipti í öðrum gjaldmiðlum en bandarískum dollurum eru færð
á gildandi gengi þess dags sem viðskiptin fara fram. Fjáreignir og fjárskuldir í öðrum gjaldmiðlum en bandarískum dollurum (USD) eru
færðar miðað við opinbert skráð árslokagengi. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning, nema í þeim tilfellum þar sem
hann er hluti af eignfærðum fjármagnskostnaði.
(d) (Gjöld) tekjur af verðbréfum og afleiðusamningum
Allar hreyfingar á verðbréfum og afleiðusamningum á gangvirði sem færðar eru í rekstrareikning eru taldar hér með. Annars vegar er
það arður, vextir og verbreytingar á hlutabréfum og skuldagerningum á gangvirði, og hins vegar eru það vextir, gengismunur og
verðbreytingar á afleiðusamningum.
Síldarvinnslan hf. Samstæðuársreikningur 2021 Fjárhæðir í bandarískum dollurum (USD)