Alda Credit Fund slhf. Fjárhæðir eru í þúsundum kr.
Þórður Jónsson, stjórnarformaður
Guðrún Björg Birgisdóttir, meðstjórnandi
Dr. Óli Grétar Blöndal Sveinsson, meðstjórnandi
Yfirlýsing um stjórnarhætti - óendurskoðað
Guðrún er fædd 11. júní 1969. Hún er lögfræðingur og hefur rekið Logia lögmannsstofu frá árinu 2010. Hún er jafnframt með meistaragráðu LL.M í
fjármögnun fyrirtækja. Árin 2000-2005 vann Guðrún hjá LOGOS lögmannsþjónustu við almenn málflutningsstörf og lögfræðiráðgjöf á fjölmörgum sviðum
atvinnulífsins. Árin 2006-2009 var Guðrún aðallögfræðingur Marel hf. og stýrði allri samningagerð fyrirtækisins og hafði yfirumsjón með útgáfu hlutabréfa
og skuldabréfa félagsins frá 2006 til loka árs 2009. Á árinu 2009 fór Marel hf. í gegnum umfangsmikla endurfjármögnun bæði á Íslandi og í Holland og bar
Guðrún ábyrgð á lögfræðilegum hluta þess.
Allir stjórnarmenn félagsins eru óháðir stórum hluthöfum félagsins, félaginu sjálfu og daglegum stjórnendum.
Rekstraraðili er hluthafi í Öldu Credit Fund slhf.
Félagið hefur ráðgjafaráð um hagsmunaárekstra sem skal skipað þremur fulltrúum kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Hlutverk ráðgjafaráðs er að veita
rekstraraðila ráðgjöf við að meta hagsmunaárekstra sem mögulega kunna að koma upp við fjárfestingar félagsins gagnvart rekstraraðila ásamt öðrum
þáttum sem rekstraraðili óskar eftir.
Ábyrgðaraðili Öldu Credit Fund slhf., ACF GP ehf. gegnir jafnframt hlutverki stjórnar félagsins. Í stjórn ACF GP ehf. sitja þrír aðalmenn. Þeir eru kosnir á
aðalfundi til eins árs í senn. Framkvæmdastjóri situr stjórnarfundi og ritar fundargerð. Stjórn félagsins fundar að öllu jöfnu mánaðarlega og oftar ef þurfa
þykir. Stjórn stýrir öllum málefnum félagsins milli hluthafafunda og gætir hagsmuna félagsins gagnvart þriðja aðila. Stjórnin starfar samkvæmt samþykktum
og áskriftarskilmálum félagsins, metur og eftir atvikum samþykkir fjárfestingar sem bornar eru upp af rekstraraðila félagsins. Stjórnin hefur eina undirnefnd,
þ.e. endurskoðunarnefnd.
Þórður er fæddur 20. ágúst 1957. Hann var verkefnastjóri á Fyrirtækjasviði KPMG í hvers kyns rekstrarráðgjöf til fyrirtækja 2011-2013. Viðskiptastjóri á
Fyrirtækjasviði Arion banka og forvera hans. Fyrirtækjasvið sér um lánamál til fyrirtækja 2003-2011. Áhættustýring Kaupþings hf., sá um og bar ábyrgð á
hverju einu sem sneri að lánamálum; s.s. að fara með mál í gegnum samþykktarferla, samningsgerð o.fl. 2001-2003. Forstöðumaður Lánaeftirlits
Íslandsbanka, með rúmlega 1 árs hléi sem starfsmaður F&M, Fyrirtækja og markaða, Íslandsbanka, 1991-2001. Starfsmaður Lánaeftirlits nýstofnaðs
Íslandsbanka, sem til varð við sameiningu Útvegsbanka, Verslunarbanka, Iðnaðarbanka og Alþýðubanka, 1990-1991. Starfsamaður Hagdeildar Útvegsbanka
Íslands og síðar Útvegsbankans hf. Leysti um tíma af forstöðumann Hagdeildarinnar, 1985-1990.
Óli er fæddur 17. febrúar 1972. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar frá 2009. Óli Grétar hefur setið í stjórnum Sjávarorku
ehf. frá árinu 2012, Íslenskrar Orku ehf. frá árinu 2012, Landsvirkjunar Power ehf. frá árinu 2011, Þeistareykja ehf. frá árinu 2010, Orkurannsóknasjóðs
Landsvirkjunar frá árinu 2007 og sat í stjórn Orkuvarða ehf. frá árinu 2007 til 2012. Óli Grétar hefur lokið PhD og MSc gráðu í byggingarverkfræði með áherslu
á vatnaverkfræði frá Colorado State University og BSc í eðlisfræði frá Háskóla Íslands.
Með þessari yfirlýsingu um stjórnarhætti Öldu Credit Fund slhf. er félagið að fylgja þeim kröfum sem koma fram í viðurkenndum leiðbeiningum sem eru til
staðar á þeim tíma sem ársreikningur þessi er samþykktur af stjórn félagsins og ákvæðum 7. mgr. 54. gr. laga nr. 161/2002. Leiðbeiningar um stjórnarhætti
fyrirtækja, 5. útgáfa frá árinu 2015, útgefnar af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq OMX Iceland hf. voru sérstaklega hafðar til
hliðsjónar þegar yfirlýsing um stjórnarhætti Öldu Credit Fund slhf. var samin. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar á heimasíðu Viðskiptaráðs Íslands,
http://www.vi.is.
Alda Credit Fund slhf. er samlagshlutafélag og starfar skv. lögum nr. 2/1995 um hlutafélög. Tilgangur félagsins er fjárfestingarstarfsemi í samræmi við
fjárfestingarstefnu félagsins, lánastarfsemi, kaup og sala á fjármálagerningum, eignarhald og rekstur fasteigna, og önnur skyld starfsemi. Helstu fjárfestingar
félagsins tengjast fjármögnun á fyrirtækjum. Alda Credit Fund slhf. er skráð sem sérhæfður sjóður og sér Kvika eignastýring hf. um daglegan rekstur hans
samkvæmt samning þar um. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur jafnframt eftirlit með starfsemi Alda Credit Fund slhf. eins og lög gera ráð fyrir. Yfirlit
um viðkomandi lög og reglur um rekstaraðila sérhæfðra sjóða má nálgast á vefsíðu Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, http://www.fme.is.
Enginn eiginlegur rekstur á sér stað hjá Öldu Credit Fund slhf. og hefur félagið enga starfsmenn. Þannig er framkvæmdarstjóri félagsins starfsmaður Kviku
eignastýringar hf. Aðalfundur skal boðaður með tveggja vikna fyrirvara en eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir lok reikningsársins. Stjórn félagsins
framkvæmir ekki árangursmat. Ekki er til skrifleg starfslýsing stjórnarformanns utan það sem fram kemur í samþykktum. Þá starfrækir stjórn ekki
undirnefndir að undanskilinni endurskoðunarnefnd.
Stjórn Öldu Credit Fund slhf. ber ábyrgð á að samþykkja fjárfestingar og fylgjast með að framkvæmd þeirra sé í samræmi við samþykkt þar um og
fjárfestingarstefnu. Rekstraraðili sér um að finna og greina fjárfestingartækifæri og leggja til fjárfestingar við stjórn félagsins. Þá þarf samþykki allra
stjórnarmanna fyrir fjárfestingum.
Innra eftirliti er útvistað, sbr. 17. gr. laga nr. 128/2011, með leyfi Fjármálaeftirlitsins. Það á við um regluvörslu, áhættustýringu og innri endurskoðun. Virk
áhættustýring og innra eftirlit eru mikilvægir þættir í rekstri félagsins.
Gildi félagsins hafa ekki verið skilgreind umfram það að félagið fjárfesti í samræmi við markmið og markaðsaðstæður hverju sinni.