
Stjórnarháttayfirlýsing (Óendurskoðað)
Persónuvernd
Stjórn og framkvæmdastjóri
Verkefni öryggisstjóra felst einnig m.a. í því að hámarka öryggi persónuupplýsinga í kerfum félagsins eins og fjallað er um
hér að framan undir „Áhættustýring og innra eftirlit“.
Nova er annt um varðveislu persónuupplýsinga viðskiptamanna sinna og starfsmanna og meðhöndlar slíkar upplýsingar í
samræmi við persónuverndarstefnu sem er aðgengileg á vefsíðu félagsins, www.nova.is/baksvids/skilmalar.
Félagið lýtur eftirliti Persónuverndar.
Lögfræðingur félagsins gegnir stöðu persónuverndarfulltrúa félagsins. Persónuverndarfulltrúi skilar árlegri skýrslu um störf
sín til stjórnar.
Stjórn félagsins samanstendur af fimm einstaklingum, þremur konum og tveimur körlum. Stjórnin er kosin af hluthöfum á
aðalfundi annað hvert ár, í samræmi við samþykktir félagsins. Eftirtaldir einstaklingar sitja í stjórn Nova Klúbbsins hf. og Nova
hf., þá sitja þau Sigríður, Hrund, Jón Óttar og Steinunn í stjórn Nova innviða ehf.:
Sigríður Olgeirsdóttir (1960), stjórnarformaður, tók sæti í stjórn félagsins á aðalfundi félagsins í mars 2023. Sigríður er
stofnandi og meðeigandi í Magnavita. Sigríður er með yfirgripsmikla reynslu af stjórnarstörfum og situr nú jafnframt í stjórn
Haga og í tilnefningarnefnd Sjóvá. Meðal fyrri starfa Sigríðar má nefna að hún var framkvæmdastjóri Rekstrar- og
upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka og sviðsstjóri þjónustu hjá Völku ehf. Sigríður nam kerfisfræði í Tietgenskolen í
Danmörku, og rekstrar- og viðskiptafræði hjá Endurmenntun Háskóla Ísands, auk þess sem hún er með MBA gráðu í Global
Management frá Háskólanum í Reykjavík og AMP gráðu frá Harvard. Sigríður er hluthafi í Nova Klúbbnum, en hún á
persónulega 473.000 hluti í félaginu. Sigríður á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila samstæðunnar,
samkeppnisaðila hennar eða stóra hluthafa í félaginu. Sigríður telst því óháður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða
stjórnarhætti.
Hrund Rudolfsdóttir (1969), stjórnarmaður, tók sæti í stjórn félagsins í desember 2021. Hrund er með mikla reynslu af
stjórnarstörfum úr mörgum skráðum félögum, fjármálastofnunum og félögum í einkaeigu, og situr nú jafnframt í stjórn Skaga,
Dranga, Veitna og Expectus, auk þess að sitja í starfskjaranefnd og endurskoðunarnefnd Skaga. Hrund var forstjóri Veritas
ehf. 2013 – 2023, og þar áður framkvæmdastjóri starfsþróunar hjá Marel hf. og forstjóri Lyfja og Heilsu hf. Hrund er með MSc
gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School og Cand.Oecon gráðu frá Háskóla Íslands. Hrund er hluthafi í
Nova Klúbbnum hf. bæði persónulega og sem einn eigenda einkahlutafélagsins Stjánkur ehf., en samtals nemur hlutfjáreign
Hrundar og fjárhagslega tengdra aðila 10.262.434 hlutum. Hrund á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila
samstæðunnar, samkeppnisaðila hennar eða stóra hluthafa í félaginu. Hrund telst því óháður stjórnarmaður skv.
Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Jón Óttar Birgisson (1974), stjórnarmaður, tók sæti í stjórn félagsins í apríl 2022. Jón er með mikla reynslu af stjórnarstörfum
auk reynslu úr fjármála- og fjarskiptageiranum, og situr nú jafnframt í stjórn Stefnis hf. og gegnir þar stjórnarformennsku. Jón
er framkvæmdastjóri Stöpla Advisory, en var áður forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar MP banka og framkvæmdastjóri
fyrirtækjaráðgjafar Saga Capital. Jón er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með próf í verðbréfamiðlun. Jón á enga hluti í
félaginu og á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila samstæðunnar, samkeppnisaðila hennar eða stóra hluthafa
í félaginu. Jón telst því óháður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Jóhannes Þorsteinsson (1978), stjórnarmaður, var kjörinn í stjórn félagsins á aðalfundi félagsins í mars 2023. Jóhannes er
yfirmaður fjárstýringar hjá T-Mobile US Inc. og situr í stjórn Smith School Foundation, University of Maryland School of
Business. Jóhannes var áður framkvæmdastjóri á fjárfestingabankasviði Deutsche Bank í New York, með áherslu á fyrirtæki
á sviði fjarskipta, fjölmiðla og tækni, og þar áður hugbúnaðarsérfræðingur hjá Íslandsbanka. Jóhannes á enga hluti í félaginu
og á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila samstæðunnar, samkeppnisaðila hennar eða stóra hluthafa í
félaginu. Jóhannes telst því óháður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Steinunn Hlíf Sigurðardóttir (1974), var kjörin í stjórn félagsins á aðalfundi félagsins í mars 2025. Steinunn situr jafnframt í
stjórn Kviku eignstýringar og gegnir þar varaformennsku, auk þess að sitja í starfsnefnd stjórnar félagsins. Steinunn er með
BA-gráðu í viðskiptafræði frá Flagler College og próf í verðbréfaviðskiptum. Steinunn starfaði síðast hjá Arion banka þar sem
hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra upplifunar viðskiptavina 2021-2024, en áður sat hún m.a. í framkvæmdastjórn Varðar á
árunum 2008-2021, starfaði sem markaðsstjóri Sjóvár, forstöðumaður á sölu- og markaðssviði Landsbankans og starfaði hjá
Kaupþingi/KB banka á árunum 1999-2005, þar sem hún gegndi m.a. stöðu markaðsstjóra. Steinunn á enga hluti í félaginu og
á ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptaaðila samstæðunnar, samkeppnisaðila hennar eða stóra hluthafa í félaginu.
Steinunn telst því óháður stjórnarmaður skv. Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti.
Nova Klúbburinn hf. Ársreikningur samstæðu 2025 Óendurskoðað