Samandreginn árshlutareikningur Félagsbústaða hf. 30. júní. 2022 3 Fjárhæðir í þúsundum króna
Skýrsla og áritun stjórnar og
framkvæmdastjóra
Tilgangur félagsins er rekstur og útleiga á félagslegum íbúðum, byggingarstarfsemi, kaup og sala fasteigna,
umsýsla og viðskipti með lausafé, lánastarfsemi og ýmis fjármálastarfsemi auk annars er tengist starfsemi
félagsins, í samræmi við V. kafla laga nr. 97/1993. Markmið félagsins er að starfa í þágu almenningsheilla
og skal öllum hagnaði félagsins, þ.m.t. uppsöfnuðum hagnaði í formi eignamyndunar, einungis ráðstafað í
þágu þessa markmiðs félagsins. Félagið er undanþegið álagningu tekjuskatts.
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu nam hagnaður félagsins 17.504 m.kr. á tímabilinu
1. janúar til 30. júní 2022. Eigið fé í lok tímabilsins nam 84.815 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi að
meðtöldu hlutafé að fjárhæð 3.240 m.kr.
Hlutafé félagsins í lok tímabilsins nemur 3.240 m.kr. og skiptist á tvo hluthafa og á Borgarsjóður Reykjavíkur
99,99% hlutafjárins og Velferðasvið Reykjavíkurborgar 0,01%.
Yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og framkvæmdastjóra er samandreginn árshlutareikningur félagsins í
samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34. Er það álit stjórnar og
framkvæmdastjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstarafkomu félagsins á tímabilinu 1.
janúar til 30. júní 2022, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þann 30. júní 2022 og breytingu á handbæru fé
á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2022.
Stjórn og framkvæmdastjóri Félagsbústaða hf. staðfesta hér með árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið
1. janúar til 30. júní 2022 með undirritun sinni.
Reykjavík, 30. ágúst 2022
Í stjórn félagsins:
Haraldur Flosi Tryggvason Klein, formaður
Laufey Líndal Ólafsdóttir
Heiða Björg Hilmisdóttir
Framkvæmdastjóri:
Sigrún Árnadóttir